Veikindi og slys

Slys og veikindi

Sjómenn sem verða fyrir líkamstjóni vegna slyss um borð í skipi eða í landi þegar unnið er í beinum tengslum við rekstur skips kunna að eiga rétt á bótum hvort sem slysið varð vegna vanrækslu sem útgerðarmaður ber ábyrgð á eða ekki.

 

Mikilvægt er að leita til læknis eins fljótt og unnt er eftir að slys á sér stað. Ástæða þess er annars vegar að flýta fyrir bata og hins vegar að tryggja sönnun vegna mögulegrar bótakröfu.

 

Einnig er mikilvægt að leita til lögmanns snemma í ferlinu. Ástæða þess er að lögmaður sem þekkir bótaferlið getur komið í veg fyrir réttindamissi sökum vanþekkingar og tryggt að ágreiningsmál um bótaskyldu og bótafjárhæð leysist á farsælan hátt fyrir tjónþola.

 

Fyrsta viðtal vegna slysa- og skaðabótamála er frítt. Ef þú ert í vafa um rétt þinn kostar því ekkert að kanna hvort ástæða sé til frekari skoðunar.

 

Í upphafi fer fram greining á hvort bótaréttur kann að vera til staðar, en bætur vegna líkamstjóna sjómanna eru reiknaðar á grundvelli skaðabótalaga

 

Ef telja má að bótaréttur vegna líkamstjóns sé til staðar getur þú að loknu fyrsta viðtali falið Porto að innheimta þær bætur sem þú átt rétt á. Ef engar bætur fást greiddar er engin þóknun greidd.

 

Hafðu samband og kannaðu rétt þinn.

Slys sjómanna

Ertu með einhverjar spurningar? 

Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér um hæl. Það kostar ekkert að kanna sinn rétt. Þú getur einnig haft samband á sjor@sjomadur.is eða í síma 792-2090.