Útgerð

Útgerð

Á Íslandi er sjávarútvegur undirstöðugrein og landfræðileg staða landsins hefur í för með sér að við erum verulega háð siglingum við út- og innflutning. Fiskveiðar og sjóflutningar eru því á meðal meginstoða íslensks atvinnulífs.

Lagaumhverfi siglinga er að mestu nokkuð sértækt. Reglur sem gilda um siglingar gilda þannig almennt ekki um önnur svið og á móti gilda reglur sem eiga við í landi almennt ekki við um siglingar. Gott dæmi um þetta er vinnuverndarlöggjöf en grundvallarlög vinnuverndar í landi gilda almennt ekki um borð í skipum. Vinnuvernd sjómanna fer því eftir sérstökum reglum sem ná almennt ekki til annarra.

Lagaumhverfi fiskveiða er svo enn sértækara. Þær reglur sem um fiskveiðar gilda krefjast margar hverjar góðrar þekkingar á starfsumhverfinu og geta verið illa skiljanlegar þeim sem ekki búa yfir lágmarksþekkingu á því sviði.

 

Við veitum útgerðum ráðgjöf á sviði sjávarútvegs og siglinga.

Útgerð

Ertu með einhverjar spurningar? 

Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér um hæl. Það kostar ekkert að kanna sinn rétt. Þú getur einnig haft samband á sjor@sjomadur.is eða í síma 792-2090.

sjómaður
Persónuverndarupplýsingar

Þessi síða notar vefkökur (einnig oft kallaðar vafrakökur eða rafræn fótspor). Vefkökur eru smáar textaskrár sem vefir vista á tölvunni eða snjalltækinu þínu þegar þú heimsæki vefsíðu. Þetta gerir tölvunni þinni eða snjalltæki kleift að muna fyrri heimsóknir og er því síðan m.a. mun fljótari að hlaðast sem bætir notendaupplifun.  Vefkökur gera það kleift að vefsíður fái nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn og muna stillingar notendans yfir ákveðinn tíma. Engum upplýsingum verður deilt með þriðja aðila.